|
Stólpi er vinnu- og verkþjálfunarstaður með félagslega- og verklega þjálfun. Auk þess er þar veitt ýmiskonar önnur þjálfun og afþreying. Starfsmenn Stólpa eru um 20 og starfsleiðbeinendur eru 6. Opnunartími Stólpa er frá kl.8.00 til 16.00 virka daga.
Starfsemin mótast af þörfum viðkomandi einstaklinga/starfsmanna hverju sinni og skiptist í eftirfarandi þættir:
- Stuðningur í starfi á almennum vinnumarkaði
- Starfs- og félagsleg þjálfun til að takast á við starf á almennum vinnumarkaði
- Undirbúningur fyrir ýmis viðfangsefni jafnt innan eigin heimilis sem utan
- Dagþjónusta/hæfing þar sem veitt er ýmiskonar þjálfun, umönnun og afþreying
Helstu verkefni:
- Stólpi tekur að sér ýmis verkefni fyrir fyrirtæki s.s. plöstun og pökkun á skrúfum, tímaritum og fleiru.
- Framleiðsla og sala á ábót (önglar) og hæðarflísum.
- Ýmis konar handverk er hannað, unnið og selt á Stólpa s.s. mottur, renningar, prjónavörur, og fleira.
- Listsköpun er í hávegum höfð í Stólpa og fá starfsmenn að skapa sín eigin listaverk.
|